Reykjavíkur maraþonið gerði kraftaverk

Ég var ósköp venjuleg 21 árs gömul stelpa þegar ég fékk mína fyrstu heilablæðingu, hún var svo lítil að mér fannst varla ástæða til að mamma og pabbi gerðu sér ferð suður það var ekkert að mér. Höggið kom svo tíu dögum seinna þegar ég fékk blóðtappa sem olli því að ég missti allan kraft hægra megin í líkamanum. Ég lifði næstu 7 mánuði í kvíðamóðu, dansandi taugaveiklaðan og óttafullan dans við lífið. Þá fékk ég aðra heilablæðingu, hún var svo stór að það þótti undur að ég vaknaði eftir aðgerðina, þó það væri reyndar sólarhring of seint, þá gat ég bara hreyft augun, en ég gat þó hreyft augun. Vikurnar í kjölfarið voru erfiðar, líf mitt hékk á bláþræði. Tíu vikum eftir að ég fékk áfallið þá var Reykjavíkur maraþonið þar var ótrúlegur samhugur og velvilji. Ég fann allan kraftinn og þetta veitti mér endalausan styrk til að takast á við framhaldið. Í kjölfarið fóru kraftaverkin að gerast. Ég er svo innilega þakklát öllum sem hlupu fyrir Styrktarsjóð Katrínar Bjarkar og öllum sem hétu á hlauparana, það var gífurlegur fjöldi fólks, sem skilaði sjóðnum í fyrsta sæti yfir félög sem styrktu einstaklinga, en þetta er ekki keppni heldur er það hugurinn sem gildir. Árangurinn var ótrúlegur og eftir Reykjavíkur maraþonið fóru vöðvarnir mínir að vakna og ég er sannfærð um að krafturinn sem þið veittuð mér hafi haft mikið að segja í því. Þó mínu maraþoni sé hvergi nærri lokið mun styrkurinn sem þið hafið gefið mér nýtast mér út það allt. Reykjavíkur maraþonið gerði kraftaverk fyrir mig, og þegar ég verð orðin nógu kraftmikil ætla ég að hlaupa og láta gott af mér leiða og þá vonandi gera kraftaverk rétt eins og gert var fyrir mig.TAKK!

Flestir hlaupararnir skrifuðu nafnið sitt á þennan bol sem hékk svo inn á herbergi hjá mér ásamt fánum sem voru settir upp í tilefni Reykjavíkur maraþonsins. 

2 athugasemdir við “   Reykjavíkur maraþonið gerði kraftaverk

Leave a Reply