New in

Mér finnst alveg sérstaklega dásamlegt að fá að vakna heima hjá mömmu og pabba einmitt þennan morguninn við lyktina sem fyllir húsið þegar pabbi kveikir upp í kamínunni og mamma mín er inn í eldhúsi og töfrar fram dásamlegu jólasmákökurnar. Núna eru jólin alveg að koma hjá mér!

Í dag þá átti ég pakka á pósthúsinu, mér til mikillar gleði voru það þessir gullfallegu Vagabond skór. Ég hafði aldrei séð þá áður en ég fékk þá og ég gæti ekki verið ánægðari með þá! Þetta eru alveg ekta skór fyrir mig nógu passlega látlausir svona mattir en svo á sama tíma eru þeir öskrandi á alla athygli út af fegurð sinni. Ég sé þá fyrir mér sem fínustu jólaskó, ég veit að þeir verða mjög mikið notaðir yfir þennan dásamlega tíma allavega hjá mér. Ég þori samt ekki að festa þá alveg allavega ekki ennþá sem hina einu sönnu og réttu spariskónna mína því leið mín liggur til Reykjavíkur eftir nokkra daga og ég veit vel að leið mín þar liggur í Kaupfélagið og þá neyðist ég kannski alveg óvart og í algjöru hugsunarleysi að kaupa mér aðra skó sem yrðu þá bara áramótaskórnir mínir, því þessir verða jólaskórnir mínir og ég gæti ekki verið ánægðari með þá!

2 athugasemdir við “New in

Leave a Reply