Blómabætingar

Það er svo dásamlegt að vera ríkur af vinum sem gæða lífið manns öllum þeim fegurstu og skemmtilegustu litum sem til eru. Ég er svo ofboðslega lánsöm að ég á heilan helling af vinum á öllum aldri. Ég nýt mín aldrei betur en í félagsskap þeirra hvort sem við erum bara að spjalla, hlæja, á æfingu, syngjandi, svo laga þær oft hárið mitt eða stjana við neglurnar mínar. Þegar ég fór fyrir viku síðan á snyrtistofuna Punt þá sá vinkona mín um að taka rauðu jólaneglurnar af mér og í staðinn fyrir þær valdi ég að fá mér þennan fallega gráa vetrarlit!

Á meðan aðrir bæta á sig blómum með vinnu þá fer ég á snyrtistofu og læt setja á mig tíu af þeim fegurstu rósum og öðrum blómum sem fyrirfinnast, þannig bæti ég á mig blómunum allavega enn sem komið er, mér finnst ég vera svo ótrúlega heppin með fólkið í kringum mig og alla þessa endalausu vini sem ég á að. <3

3 athugasemdir við “Blómabætingar

Leave a Reply