Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

Í tilefni af 6. mars sem er Evrópudagur talþjálfunnar hef ég ákveðið að gera það sem ég lofaði sjálfri mér að ég myndi aldrei nokkurn tíma gera en það er að skrifa hér alla mína sögu sem viðkemur talmeinafræðingum. Ég er 24 ára gömul stelpa sem missti allan vöðvakraft vegna heilaáfalla og er því ótalandi, en á sama tíma er hugsun mín heil og ég er svo heppin að vegna kynna minna við talmeinafræðinga þá verður hversdagslegt líf mitt eins venjulegt og skemmtilegt og það getur orðið.

Ég var 22 ára þegar ég vaknaði rúmlega sólarhring of seint eftir heilablæðingu og heilaskurðaðgerð sem varð að framkvæma til að ég ætti einhvern möguleika á að halda þessu hverfula en á sama tíma óviðjafnanlega skemmtilega lífi áfram.

Ég var 22 ára þegar einu vöðvarnir sem hreyfðust voru hægra augnlokið og hinn sterki og stabíli hjartavöðvi. En ég man allt, ég man þegar mamma sagði mér hvað hefði átt sér stað, og ég man eftir öllum læknunum og hjúkrunarfræðingunum, hjúkrunarfræðinemunum og sjúkraliðunum, öllum sem björguðu lífi mínu nánast á hverjum degi og stundum oft á dag fyrstu þrjá mánuðina. Svo lá ég á sjúkrahúsi næstu ellefu mánuðina.

Ég man svo ótrúlega vel eftir þeim mikla gleðidegi þegar það kom til mín einn fær talmeinafræðingur og færði mér röddina mína aftur þótt hún hefði engan hljóm og ég ætti engan vöðvakraft til að mynda öll orðin sem höfðu bara búið innra með mér síðustu sex vikurnar. Ég man svo vel þegar talmeinafræðingurinn sýndi mér spjaldið og spurði mig svo: ,,Á hvaða staf byrjar nafnið þitt?” Ég horfði þá bara tvisvar á rauða hópinn því það þýddi K. Svo spurði hún mig ,,Hver stendur hér við hliðina á mér?” Og þá horfði ég fyrst á brúna hópinn og svo á rauða hópinn, því Á er rauður stafur í brúna hópnum, og þannig stafaði ég ÁSGEIR en Ásgeir stóð við hliðina á henni brosandi því alstærsta brosi sem ég hef séð nokkurn mann skarta! Síðan leyfði hún Ásgeiri að halda á spjaldinu og hún spurði mig ,,Til hvaða lands fórstu seinast í frí?” Talmeinafræðingurinn kenndi Ásgeiri að lesa af spjaldinu þegar ég stafaði með augunum GRIKKLAND. Það var svo gaman að koma mömmu minni, tengdamömmu og Ásgeiri á óvart þegar Ásgeir var að kenna þeim á spjaldið og ég stafaði ,,ÉG ER MEÐ HEILA HUGSUN OG ÉG HLAKKA SVO TIL ÞEGAR ÁSTHILDUR OG SÓLVEIG VERÐA KOMNAR”. Frá og með þessum orðum vissu þau að ég hafði alltaf verið með þeim og ég skildi allt.

Ég mun aldrei gleyma þessum degi. Þarna gat ég bara hreyft augun og látið fólk skilja já- og nei-in mín með því að ég blikkaði einu sinni fyrir já og tvisvar fyrir nei, en seinna gat ég líka hrist höfuðið ef ég vildi segja nei og kinkað kolli fyrir já. Lungun mín voru líka alveg að fara að vakna og ég gat andað með aðstoð súrefnis.

Það getur enginn ímyndað sér hvaða frelsisgjöf þetta var. Ég gat stafað með augunum fyrir hvern þann sem hafði áhuga á því að lesa af spjaldinu. Ásgeir og mamma áttu samt auðveldast með að lesa af spjaldinu, þau lesa hug minn líkt og hann sé þeim opin bók.

Við að fá þessa miklu gjöf sem spjaldið var mér þó að þetta séu bara hljómlausir stafir þá urðu þeir röddin mín og hún tjáir alveg jafnt eftirvæntingu, gleði, sorg og reiði rétt eins og hljómmikla röddin mín gerði fyrir þremur árum. Með tilkomu þessa spjalds fékk ég loksins aftur hina langþráðu stjórn yfir sjálfri mér. Ég fékk stjórnina yfir lyfjunum mínum, ég gat tjáð ást mína eða hatur, gat aftur stjórnað fatavali mínu, ég gat loksins aftur tjáð tilfinningar mínar, tekið þátt í umræðum og staðið fast á mínum skoðunum. Með augunum stafaði ég ljóð sem ég hafði samið þessar erfiðu vikur sem ég lá á gjörgæslunni, einnig stafaði ég með augunum kveðju sem systir mín las á styrktartónleikunum sem voru haldnir fyrir mig.

Ég stafaði með augunum í marga mánuði en svo vaknaði vinstri höndin og í dag (tveimur árum seinna) þá stafa ég með því að benda á stafinn. Þetta er orðið mikið einfaldara fyrir mig en þetta var. Ég lendi samt reglulega í fólki sem kann ekki að eiga samskipti við mig og þá forðar það sér fljótt og leyfir mér ekkert að tala. Ég hef farið til margra lækna sem hvorki líta á mig né tala við mig, þeir bara tala við aðilann sem kom með, svo ég ætti auðveldara með að stafa. En núna þá reyni ég alltaf að byrja á því að stafa ,,Hæ ég heiti Katrín Björk, mér þykir mjög gaman að kynnast þér og þótt ég tjái mig á þennan hátt þá þætti mér afar vænt um ef þú gætir talað við mig.”

Ég er tvisvar í viku í talþjálfun hjá Tröppu þar sem ég er í fjarþjálfun og í gegnum tölvuna á ég alveg ómetanleg samskipti við talmeinafræðinginn minn. Það er svo stórkostlegt að finna vöðvana vakna og fylgjast með þeim styrkjast. Mér finnst ég vera svo heppin að fá að njóta fjarþjálfunar hjá Kara connect sem gerir það mögulegt fyrir mig að ég geti búið með fjölskyldu minni hérna fyrir vestan og ég fái vikuleg samskipti við talmeinafræðing. Í framtíðinni þá sé ég fyrir mér að þetta spjald verði bara upp á vegg í ramma og ég labbandi og talandi svo allir geta skilið mig og allt hafi það verið þessum dásamlegu þjálfurum að þakka!

8 athugasemdir við “Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

  1. Þú ert mikill snillingur og baráttujaxl! Ég ætla að leyfa mér að senda þennan link til systur minnar sem yfir talmeinafræðingur á ullevål sjúkrahúsinu í Oslo. Ég veit að hun kann að meta þetta og það hlítur að vera gríðarlega gaman fyrir fólk sem er að vinna með svo jákvæðri manneskju eins og þér 🙂 Bestu kveðjur héðan frá Stavanger – kv, tolli.

      • elsku Katrín, ég heiti Ásta Dis og ég varð fyrir heilaafallii árið 2016 og og missti öll tungumál mín, meira að segja táknmál, ég er heyrnarlaus. Þau komu til baka í febrúar 2017, þá fékk ég samskipta tölvu sem ég stjórna með augum mínum. Ég er svo þakklát fyrir lífið sem ég hef þrátt fyrir sjúkdóm minn. Þú getur addað mér á Facebook.
        think pink positive þín Ásta Dís.

  2. halló Katrín Björk. Megum við birta póstinn þinn á heimasíðu okkar hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands? VIð viljum leyfa sem flestum að kynnast þeim árangri sem hægt er að ná og ekki síður að sýna öllum þinn óbilandi dugnað og jákvæðni.
    kveðja
    Kristján Sverrisson
    Heyrnar- og talmeinastöð Íslands

  3. Elsku Katrín það er svo aðdáunarvert að fá að fylgjast með þér og þínum sigrum. Ef allir tækju þig til fyrirmyndar væri heimurinn betri.
    Baráttukveðjur til þín <3

Leave a Reply