Það sem ég ætla að gera í ágúst

Ég hef alltaf átt í virkilega skrítnu sambandi við ágústmánuð þar sem ég hef iðulega fyllst ónotum og orðið að stórum stresshnúti eftir því sem líður á þennan mánuð. En eftir að mér var kippt úr þessu óvenjulega en samt svo alltof algenga hversdagslífi þá hafa seinustu þrír ágústmánuðir verið mér sem gjörbreytir. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það er í alvörunni mikil forréttindi að fá loksins að taka á móti ágústmánuði laus við allt stress og ég get sagt það full stolts að ég tek á móti þessum mánuði algerlega kvíðalaus. Þetta sumarið hef ég verið á haus í svo stóru og miklu verkefni þar af leiðandi bitnar það á blogginu þegar það er eitthvað annað sem á hug minn og hjarta. Á meðan ég er í fríi frá öllu mínu daglega amstri og æfingum þá reyni ég að nýta allann þann auða tíma sem ég hef til að taka til í mínu daglega lífi og reyna að koma í vana nýjum hlutum. Hér koma punktar sem ég hef til hliðsjónar og ég ætla mér að láta þá fylgja mér út árið.

Síðan ég kom sumarfríinu mínu í rútínu þá er ég mætt á skrifstofuna mína og byrjuð að vinna klukkan átta. Ég kann vel við það, mér finnst ég ná að gera miklu meira úr deginum þegar ég byrja að vinna klukkan átta.

Ég finn hvað ég verð mikið afkastameiri ef það fyrsta sem ég geri þegar ég sest á skrifstofuna mína á morgnanna er að finna tvö eða þrjú verkefni sem ég ætla að leggja aðaláherslu á þann daginn, þá get ég raðað þeim niður í tíma- og áhersluröð með öllum hinum verkefnum.

Dagarnir verða svo miklu auðveldari og skemmtilegri ef brosið er mitt leiðarljós í gegnum þá!

Ég á það til að missa aðeins móðinn þegar allt mitt hversdagslega líf stöðvast í sumarfríum. En ég ætla aldrei að missa móðinn og gefast upp þó það sé stundum svolítið freistandi að klæðast bara náttfötum á nóttunni og líka allan liðlangan daginn, liggja svo bara upp í rúmi og lesa. Þegar ég er í þessu hugarástandi þá geta allir athafnir sem reynast mér erfiðar orðið hreinlega ógerlegar í huganum á mér, en þá þarf ég bara að muna að ég get allt þó það taki langan tíma og sé mér erfitt. Ég GET, ÆTLA og SKAL!

Ég ætla að klæðast spelkum og skóm alla daga. Það hvetur mig til að ganga á milli staða þegar ég er svona mikið heima.

Ég þarf að minna sjálfa mig á að reyna fyrst að segja það sem ég vil segja áður en ég stafa það.

Gleðin gefur svo mikið af sér. Ég ætla að láta gleðina vera öllu yfirsterkara svo ég taki á móti áskorunum með brosi á vör þá get ég gert mitt albesta til að ég geti verið stolt og ánægð með sjálfan mig.

Þegar ég vakna þá finnst mér ég sjaldan byrja dagana betur en þegar ég kem huganum fljótlega í það að hugsa jákvæðar og uppbyggjandi hugsanir um bæði mig og verkefni dagsins, þá líða dagarnir miklu auðveldar.

Njóta sumarfrísins og eyða sem mestum tíma með vinum mínum og fjölskyldu.

Borða á fyrirfram ákveðnum tímum. Ég verð aldrei svöng svo ég ætla að prufa borða eftir klukku!

Ein athugasemd við “Það sem ég ætla að gera í ágúst

  1. Eins og er er brjala? a? gera i skolanum svo eg hef ekki miki? na? a? klara neitt nytt. En eg er me? eitt lag sem fer a? ver?a tilbui? og eg a bara eftir a? klara, ?tli eg hendi svo ekki i EP-plotu i e?a eftir sumari?, eg er me? nog af hugmyndum allavegana.

Leave a Reply