14.900kr.
Tvær stjörnur er hálsmen sem hannað var af Katrínu Björk Guðjónsdóttir og er nú selt til styrktar Stöndum saman Vestfirðir, sem er að safna fyrir endurhæfingartækjum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða bæði á Patreksfirði og Ísafirði.
Katrín Björk fékk alvarlega heilablæðingu 21 árs að aldri og hefur þurft að kljást við mikla líkamlega fötlun síðan þá. Katrín er fædd og uppalin á Flateyri og var í háskólanámi í Háskóla Íslands þegar hún veiktist. Hún hefur verið í stöðugri endurhæfingu og aldrei gefist upp eða látið mótlætið buga sig. Hún hefur deilt lífi sínu, sigrum og raunum á samfélagsmiðlum og hefur hún vakið athygli landsmanna fyrir jákvæðni, bjartsýni og baráttumóð andspænis þeim miklu erfiðleikum og áföllum sem á henni hafa dunið þrátt fyrir ungan aldur. Þetta verkefni er í raun enn ein birtingarmynd þess dugnaðar, hugrekkis og þeirrar afstöðu Katrínar að láta aldrei deigan síga.
Hún fékk hugmynd að hönnun á skartgrip og úr varð menið Tvær stjörnur sem tákn um von, kærleika og vináttu þar sem sjá má úr meninu tvær stjörnur eða verur sem styðja hvor við aðra. Haraldur Hrafn Guðmundsson, mágur Katrínar og gullsmíðameistari, smíðaði gripinn í samvinnu við Katrínu og fékkst styrkur frá Þróunarsjóði Flateyrar til framleiðslu á því.
Tvær stjörnur eru nú komnar til sölu og fellur helmingur ágóðans til Stöndum saman Vestfirðir. Katrín hefur notið góðs af því mikilvæga starfi sem fram fer á endurhæfingardeild Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og vill með þessu sýna sitt þakklæti og stuðning við það starf.
Til á lager
Description

Aðrar upplýsingar
Weight | 1 kg |
---|